Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 13. febrúar 2018 14:35
Magnús Már Einarsson
Gylfi og Jóhann báðir á topp 50 lista hjá Sky
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Getty Images
Vikulega birtir Sky Sports lista yfir þá 50 leikmenn sem hafa leikið best í ensku úrvalsdeildinni undanfarnar vikur.

Á listanum er miðað við frammistöðu leikmanna í síðustu fimm leikjum. Leikmenn fá einkunn út frá 32 tölfræðiþáttum í hverjum leik.

Íslensku landsliðsmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru báðir á listanum.

Gylfi skoraði fyrir Everton gegn Crystal Palace og er í 29. sæti á listanum.

Jóhann Berg skoraði fyrir Burnley gegn Manchester City á dögunum og hann er í 36. sæti listans þrátt fyrir að gengi Burnley hafi dalað undanfarnar vikur.

Sergio Aguero er á toppnum eftir fernuna með Manchester City gegn Leicester um helgina en hér að neðan er listinn í heild.
Athugasemdir
banner
banner