Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. febrúar 2019 07:00
Arnar Helgi Magnússon
Arbeloa bíður eftir því að Messi hætti
Mynd: Getty Images
Hinn spænski Alvaro Arbeloa segist telja niður dagana þangað til að Lionel Messi leggi skóna á hilluna.

Arbeloa lagði sjálfur skóna á hilluna árið 2017 en hann lék stærstan hluta ferilsins með Real Madrid og spilaði oft á móti argentíska töframanninum.

„Ég virði Barcelona mikið. Þeir eru frábært lið með frábæra leikmenn innanborðs, eins og Lionel Messi, hann er frábær."

„Þrátt fyrir hæfileika hans hef ég aldrei notið þess að horfa á hann og ég held að ég muni aldrei gera það. Ég vona að hann leggi skóna á hilluna bráðlega. Ég tel niður dagana."

Ansi áhugaverð ummæli frá þeim spænska en Alvaro Arbeloa lék að sjálfsögðu einnig með Liverpool á árunum 2007 til 2009.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner