Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. febrúar 2019 10:30
Elvar Geir Magnússon
Hinn nítján ára Zaniolo setti nýtt met
Nicolo Zaniolo.
Nicolo Zaniolo.
Mynd: Getty Images
Nicolo Zaniolo, 19 ára leikmaður Roma, setti met með því að skora bæði mörkin í 2-1 sigrinum gegn Porto í Meistaradeildinni í gær.

Hann er yngsti ítalski leikmaðurinn sem skorar tvennu í Meistaradeildinni.

„Þetta var magnað kvöld. Ég er orðlaus. Ég bjóst aldrei við þessu. Að skora fyrir framan þessa stuðningsmenn er ótrúleg tilfinning," sagði Zaniolo við Sky Sport Italia.

„Það er samt pirrandi að við fengum á okkur mark. Seinni leikurinn er eftir og það er allt opið. Við þurfum að vinna þetta sem ein heild."

„Porto skapaði sér nánast ekkert í leiknum og við þurfum að endurtaka leikinn í seinni leiknum."

Zaniolo gekk í raðir Roma síðasta sumar frá Inter, sem hluti af sölu Radja Nainggolan til Inter.
Athugasemdir
banner
banner