Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 13. febrúar 2019 08:19
Elvar Geir Magnússon
Hiti milli Di Maria og áhorfenda - Kallaði 'Fokk off' til stúkunnar
Það voru læti í kringum Di Maria í gær!
Það voru læti í kringum Di Maria í gær!
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Angel Di Maria virtist hrópa 'Fokk off' í átt að stuðningsmönnum Manchester United í gær, eftir að Paris Saint-Germain tók forystuna á Old Trafford.

Di Maria átti misheppnaða dvöl hjá United og fékk baul og blístur úr stúkunni. Hann ákvað að svara til baka eftir að PSG skoraði fyrra mark sitt í leiknum.

Á upptökum úr útsendingu frá leiknum sést Di Maria hrópa að stúkunni 'Fokk off' og spænska blótsyrðinu 'Puta'.

Margir stuðningsmenn United sögðu frá því á samfélagsmiðlum að þessi orð hefðu komið úr munni leikmannsins.

Skömmu síðar var bjórflösku kastað úr stúkunni í átt að Di Maria sem brást við með því að taka flöskuna upp og þykjast taka sopa.

Það var nóg um að vera í kringum Di Maria í leiknum en í lok seinni hálfleiks ýtti Ashley Young honum með öxlinni út fyrir hliðarlínuna í einvígi. Di Maria flaug á auglýsingaskilti og lá í dágóðan tíma.

PSG vann leikinn í gær 2-0 eins og allir vita og er með öll spil á hendi fyrir seinni leikinn. Di Maria lagði upp bæði mörkin.
Athugasemdir
banner
banner
banner