mið 13. febrúar 2019 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sancho orðlaus yfir seinni hálfleiknum
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho sneri heim til London er hann spilaði með Dortmund gegn Tottenham í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Þetta var fyrri leikur liðanna og endaði hann með 3-0 sigri Tottenham. Öll mörkin komu í seinni hálfleiknum.

„Ég er ekki með nein orð um seinni hálfleikinn. Við gerðum okkar besta, en þeir skoruðu og voru betra liðið," sagði Sancho í samtali við BT Sport.

„Í fyrri hálfleiknum spiluðum við mjög vel. Við misstum dampinn og við misstum einbeitinguna. Við verðum að halda einbeitingu allan leikinn."

„Jan Vertonghen er góður leikmaður. Vonandi getum við gert betur næst. Ég er ánægður að vera á Englandi og spila fyrir framan fjölskyldu mína."

„Vonandi getum við komist áfram í næstu umferð," sagði þessi efnilegi leikmaður.

Sjá einnig:
Wenger reyndi að fá Sancho
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner