mið 13. febrúar 2019 21:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger reyndi að fá Sancho
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger segist hafa reynt að fá Jadon Sancho til Arsenal áður en hann fór til Borussia Dortmund.

Sancho er fæddur í London en fór 14 ára til Manchester City. Hann yfirgaf City þar sem hann vildi fá að spreyta sig í aðalliðsfótbolta og fór hann til Dortmund í Þýskalandi á lokadegi félagaskiptagluggans sumarið 2017.

Dortmund var ekki eina félagið sem hafði áhuga á honum.

„Ég reyndi að fá hann. Ég reyndi að lokka hann til Arsenal þar sem hann er frá Lundúnum," sagði Wenger við BeIN Sports.

Það gekk ekki alveg hjá Wenger, en hinn 18 ára gamli Sancho hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína hjá Dortmund.

Sjá einnig:
Draumalið leikmanna sem fóru næstum því til Arsenal
Athugasemdir
banner
banner
banner