Alexis Sanchez átti ekki gott kvöld, frekar en liðsfélagar sínir þegar Manchester United féll úr leik í Meistaradeildinni. United tapaði 2-1 á heimavelli gegn Sevilla.
Sanchez hefur hreint út sagt verið slakur frá því hann kom til Man Utd frá Arsenal í janúarglugganum.
Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, talaði um Sanchez á BT Sport eftir leikinn í kvöld.

„Sanchez er eins og skugginn af leikmanninum sem hann var," sagði Ferdinand eftir leikinn.
„Það er eins og hann sé ókunnugur í þessu liði. Ég finn til með honum, þetta er ekki að falla með honum."
„Allir leikmennirnir í kvöld voru arfaslakir."
Athugasemdir