Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. mars 2019 14:05
Elvar Geir Magnússon
Enski landsliðshópurinn: Declan Rice valinn
Declan Rice.
Declan Rice.
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate landsliðsþjálfari Englands hefur valið Declan Rice í landsliðshóp sinn fyrir leiki gegn Tékkum og Svartfellingum í undankeppni EM síðar í þessum mánuði.

Þessi tvítugi leikmaður valdi nýlega að spila fyrir landslið Englands frekar en Írland en hann á vináttuleiki og yngri landsleiki að baki fyrir Íra.

Hann hefur fengið verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína með West Ham á tímabilinu.

Callum Wilson, sóknarmaður Bournemouth, er einnig í hópnum en hann má sjá í heild hér að neðan.

England mætir Tékklandi 22. mars og Svartfjallalandi 25. mars.

Markverðir: Tom Heaton, Jack Butland, Jordan Pickford

Varnarmenn: Trent Alexander-Arnold, Ben Chilwell, Michael Keane, Harry Maguire, Danny Rose, Luke Shaw, John Stones, Kieran Trippier, Kyle Walker, James Tarkowski

Miðjumenn: Ross Barkley, Dele Alli, Fabian Delph, Eric Dier, Jordan Henderson, Ruben Loftus-Cheek, Declan Rice

Sóknarmenn: Harry Kane, Marcus Rashford, Jadon Sancho, Raheem Sterling, Callum Wilson


Athugasemdir
banner
banner