Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 13. mars 2019 20:19
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Gary Martin skoraði fjögur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 6 - 0 Afturelding
1-0 Gary Martin ('22)
2-0 Sigurður Egill Lárusson ('39)
3-0 Birkir Mar Sævarsson ('50)
4-0 Gary Martin ('53)
5-0 Gary Martin ('57)
6-0 Gary Martin ('64)

Íslandsmeistarar Vals völtuðu yfir Aftureldingu í Lengjubikarnum í dag og var Gary John Martin í aðalhlutverki.

Gary skoraði fyrsta mark leiksins og tvöfaldaði Sigurður Egill Lárusson forystuna fyrir leikhlé.

Birkir Már Sævarsson gerði þriðja mark heimamanna snemma í síðari hálfleik og á næsta korteri skoraði Gary þrennu.

Gary endaði leikinn því með fjögur mörk og lokatölur 6-0 fyrir Val sem endar riðlakeppnina með 10 stig eftir 5 umferðir.

Afturelding lýkur keppni með 7 stig og eru Valsarar nokkurn veginn öruggir með annað sætið, nema Fjölnir valti yfir KA er liðin mætast á Akureyri næsta sunnudag.
Athugasemdir
banner