Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 13. mars 2019 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Maradona segir Ronaldo vera galdramann og skepnu
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo skoraði magnaða þrennu er Juventus sló Atletico Madrid úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Atletico hafði unnið fyrri leikinn 2-0 á heimavelli og sagðist Ronaldo, sem á sér langa markasögu gegn Atletico, ætla sér að skora þrennu í seinni leiknum. Þetta sagði hann vinum og vandamönnum en ekki fjölmiðlum.

„Sumir knattspyrnumenn eru snertir með töfrasprota," sagði Maradona eftir þrennuna í gærkvöldi.

„Sannleikurinn er sá að við Argentínumenn erum stoltir að Messi er héðan og kaus ekki að spila fyrir Spán frekar. Það breytir því ekki að hinn (Ronaldo) er algjör skepna.

„Ronaldo býr yfir tærum krafti og núna er hann líka galdramaður því hann sagðist ætla að skora þrennu fyrir leikinn og lét verða af því."

Athugasemdir
banner
banner
banner