Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 13. mars 2019 14:30
Elvar Geir Magnússon
Mkhitaryan tæpur fyrir leikinn gegn Rennes
Með á morgun?
Með á morgun?
Mynd: Getty Images
Óvíst er hvort Henrikh Mkhitaryan verði klár í seinni leik Arsenal gegn Rennes í Evrópudeildinni annað kvöld.

Arsenal er 3-1 undir í einvíginu eftir vonbrigði í Frakklandi.

Mkhitaryan byrjaði fyrri leikinn en missti af sigurleiknum gegn Manchester United um liðna helgi vegna bakvandamála.

Hann gæti þó spilað á morgun.

Alexandre Lacazette snýr aftur úr leikbanni en varnarmaðurinn Sokratis fékk rautt í fyrri leiknum og verður í banni.

Unai Emery mun væntanlega tefla Shkodran Mustafi fram í vörninni í fjarveru Sokratis.

Þá er reiknað með því að Petr Cech verði í markinu en Hector Bellerín, Rob Holding og Danny Welbeck eru enn á meiðslalistanum.

„Við getum gert betur og ég hef trú á okkar leikmönnum og að stuðningsmennirnir hjálpi okkur áfram," sagði Emery eftir fyrri leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner