Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 13. mars 2019 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Sara og stöllur í undanúrslit
Mynd: Mirko Kappes
Wolfsburg 4 - 0 Potsdam
1-0 Alexandra Popp ('20)
2-0 Alexandra Popp ('26)
3-0 Pernille Harder ('48)
4-0 Pia Wolter ('75)

Kvennalið Wolfsburg er komið í undanúrslit þýska bikarsins eftir góðan sigur gegn Potsdam.

Alexandra Popp skoraði tvennu í fyrri hálfleik og gerði Pernille Harder út um viðureignina í upphafi síðari hálfleiks, áður en Pia Wolter gerði fjórða og síðasta markið þegar stundarfjórðungur var eftir.

Sara Björk Gunnarsdóttir er mikilvægur hlekkur í liði Wolfsburg og verður áhugavert að sjá hvaða andstæðingum hún mætir í undanúrslitum. Dregið verður á morgun og koma Hoffenheim, FC Bayern og Freiburg til greina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner