Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. mars 2020 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haaland: Saknaði stuðningsmannanna - Þarf á þeim að halda
Mynd: Getty Images
„Ég saknaði stuðningsmanna minna frá Dortmund," sagði Erling Braut Haaland eftir 2-0 tap gegn PSG í Meistaradeildinni á miðvikudag.

Norski framherjinn hefur farið vel af stað hjá Dortmund eftir komu frá Red Bull Salzburg í janúar.

Hann er strax orðinn elskaður af stuðningsmönnum og hann sagði það skrýtið að leika fyrir framan enga áhorfendur. Hann var spurður út í tilhugsunina að spila fyrir framan enga áhorfendur aftur á laugardag en þá mætir Dortmund liði Schalke í nágrannaslag.

„Mér finnst það hræðilegt, einfaldlega. Ég þarf á þeim að halda," sagði Haaland.
Athugasemdir
banner
banner
banner