Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 13. apríl 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Juventus tveimur stigum frá titlinum
Meistaradeildarslagur í Mílanó
Juventus getur unnið ítölsku deildina í áttunda skiptið í röð hafi liðið betur gegn fallbaráttuliði SPAL í dag. Juve er með 20 stiga forystu á Napoli á toppi deildarinnar þegar sjö umferðir eru eftir.

Heimamenn í SPAL munu þó ekkert gefa eftir enda aðeins fjórum stigum frá fallsæti sem stendur. Cristiano Ronaldo og Giorgio Chiellini eru ekki í leikmannahópi Juventus.

Það er annar mikilvægur leikur á dagskrá síðar í dag þegar Roma tekur á móti Udinese. Roma er einu stigi frá Meistaradeildarsæti og Udinese fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Stórleikur helgarinnar er svo á dagskrá í kvöld þegar AC Milan tekur á móti Lazio. Aðeins þrjú stig skilja liðin að í Meistaradeildarbaráttunni og verður mikið um gæði í leiknum þar sem hvorugt lið er að hvíla menn fyrir Evrópukeppnir.

Leikir dagsins:
13:00 SPAL - Juventus (Stöð 2 Sport 2)
16:00 Roma - Udinese (Stöð 2 Sport 2)
18:30 AC Milan - Lazio (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
14 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
15 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner