Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. apríl 2019 22:00
Hafliði Breiðfjörð
Spánn: Atletico minnkaði forskot Barcelona
Griezmann skoraði í kvöld.
Griezmann skoraði í kvöld.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í kvöld í spænska boltanum þar sem Atletico Madrid og Sevilla unnu sína leiki.

Atletico Madrid 2 - 0 Celta
1-0 Antoine Griezmann ('42 )
2-0 Alvaro Morata ('74 )

Í fyrri leiknum fékk Atletico Madrid lið Celta í heimsókn og vann leikinn 2-0. Antoine Griezmann og Alvaro Morata skoruðu í sitthvorum hálfleiknum. Sigurinn gerir það að verkum að Atletico minnkar forskot Barcelona á toppnum niður í 9 stig en liðið tapaði toppslag liðanna um síðustu helgi.

Celta sem er rétt fyrir ofan fallsæti var án markahróksins Iago Aspas í leiknum en þrátt fyrir það þurfti Jan Oblak markvörður Atletico nokkrum sinnum að taka á honum stóra sínum.

Sevilla 3 - 2 Betis
1-0 Munir El Haddadi ('26 )
1-1 Giovani Lo Celso ('55 )
2-1 Pablo Sarabia ('59 )
3-1 Franco Vazquez ('64 )
3-2 Cristian Tello ('82 )

Í seinni leiknum jók Sevilla möguleika sína á Meistaradeildarsæti með sigri á Betis. Þeir eru nú komnir í fjórða sæti deildarinnar.

Liðin skiptust á að skora en eftir að Betis minnkaði muninn í 3-2 þegar 20 mínútur voru eftir með geggjaðri aukaspyrnu var nokkur spenna milli liðanna.

Sevilla hélt þetta þó út og er komið með 52 stig, tveimur meira en Getafe sem er í fimmta sætinu og á leik á morgun gegn Valladolid. Betis er í 9. sæti.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 32 25 6 1 70 22 +48 81
2 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
3 Girona 32 21 5 6 67 40 +27 68
4 Atletico Madrid 32 19 4 9 59 38 +21 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 32 13 12 7 46 34 +12 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
10 Getafe 32 9 13 10 38 44 -6 40
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
13 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
14 Alaves 32 9 8 15 28 38 -10 35
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 32 1 11 20 31 64 -33 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner