Ensku slúðurblöðin bíða spennt eftir félagaskiptaglugganum í sumar. Skoðum slúðurpakka dagsins.
Arsenal vill fá framherjann Odsonne Edouard (23) frá Celtic en Leicester hefur líka áhuga. Leikmaðurinn hefur skorað 20 mörk í 35 leikjum fyrir skoska liðið á tímabilinu. (Telegraph)
Manchester United útilokar ekki að gera aðra tilraun til að fá Jadon Sanho (21) frá Borussia Dortmund í sumar. (Manchester Evening News)
Mino Raiola, umboðsmaður Erling Braut Haaland, segir að Borussia Dortmund vilji ekki selja framherjann í sumar. (Star)
Manchester United hefur endurvakið áhuga sinn á Sergej Milinkovic-Savic (26) miðjumanni Lazio. Real Madrid og PSG eru einnig að skoða hann. (Gazzetta)
Manchester United er í viðræðum um að kaupa ástralska félagið Central Coast Mariners. (Sydney Morning Herald)
Tottenham ætlar að reyna að fá Jerome Boatneg (32) varnarmann Bayern Munchen en hann verður samningslaus í sumar. (Sky Germany)
Tottenham ætlar að styrkja vörnina í sumar en félagið þarf fyrst að selja leikmenn til að fá pening í kassann. (Mail)
AC Milan hefur áhuga á að kaupa Fikayo Tomori (23) miðvörð Chelsea en hann er á láni hjá ítalska félaginu í dag. (Corriere dello Sport)
Vonir Chelsea til að fá markvörðinn Gianluigi Donnarumma (22) hafa aukist eftir fréttir um að samningaviðræður hans við AC Milan hafi siglt í strand. (Gazzetta dello Sport)
Eddie Howe, Frank Lampard og Sean Dyche eru á óskalista Crystal Palace sem næsti stjóri en Roy Hodgson er líklega á förum í sumar. (Football Insider)
Enska úrvalsdeildin er að íhuga að sniðganga samfélagsmiðla í tengslum við eina umferð í deildinni til að mótmæla kynþáttafordómum. (Mail)
Sir Alex Ferguson segir að Owen Hargreaves hafi verið verstu kaup sín hjá Manchester United. (Star)
Athugasemdir