Liverpool hefur áhuga á Van de Ven - Palmer til í að spila fyrir Man Utd - Real Madrid og Man Utd sýna Neves áhuga
   lau 13. apríl 2024 13:33
Aksentije Milisic
England: Newcastle valtaði yfir Tottenham og skoraði fjögur
Gordon frábær í dag.
Gordon frábær í dag.
Mynd: EPA

Newcastle 4 - 0 Tottenham
1-0 Alexander Isak ('30 )
2-0 Anthony Gordon ('32 )
3-0 Alexander Isak ('51 )
4-0 Schar ('87)

Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni fór fram á St. James's Park í Newcastle þar sem heimamenn fengu Tottenham Hotspur í heimsókn.


Newcastle var miklu betri liðið í dag og valtaði hreinlega yfir Lundúnarliðið. Þeir voru búnir að ógna marki Tottenham nokkrum sinnum þegar Alexander Isak skoraði á 30. mínútu eftir frábæran undirbúning frá Anthony Gordon.

Rúmri mínútu síðar var Gordon búinn að tvöfalda forystu Newcastle en Hollendingurinn Micky van de Ven leit afar illa út í vörninni hjá gestunum í mörkunum tveimur.

Isak var aftur á ferðinni í upphafi síðari hálfleiks þegar hann gerði endanlega út um leikinn með öðru marki sínu og þriðja marki Newcastle. Hann fékk þá frábæra stungusendingu frá Bruno Guimaraes og gerði Isak engin mistök og tók færið sitt vel.

Heimamenn voru ekki hættir en varnarmaðurinn öflugi Fabian Schar stangaði þá boltann í netið eftir hornspyrnu frá Gordon og setti síðasta kirsuberið á kökuna.

Sannfærandi sigur hjá Newcastle en liðið er nú komið upp í sjötta sæti deildarinnar með 50 stig. Tottenham er sæti ofar með tíu stigum meira.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 22 15 5 2 40 14 +26 50
2 Man City 22 13 4 5 45 21 +24 43
3 Aston Villa 22 13 4 5 33 25 +8 43
4 Liverpool 22 10 6 6 33 29 +4 36
5 Man Utd 22 9 8 5 38 32 +6 35
6 Chelsea 22 9 7 6 36 24 +12 34
7 Brentford 22 10 3 9 35 30 +5 33
8 Newcastle 22 9 6 7 32 27 +5 33
9 Sunderland 22 8 9 5 23 23 0 33
10 Everton 22 9 5 8 24 25 -1 32
11 Fulham 22 9 4 9 30 31 -1 31
12 Brighton 22 7 9 6 32 29 +3 30
13 Crystal Palace 22 7 7 8 23 25 -2 28
14 Tottenham 22 7 6 9 31 29 +2 27
15 Bournemouth 22 6 9 7 35 41 -6 27
16 Leeds 22 6 7 9 30 37 -7 25
17 Nott. Forest 22 6 4 12 21 34 -13 22
18 West Ham 22 4 5 13 24 44 -20 17
19 Burnley 22 3 5 14 23 42 -19 14
20 Wolves 22 1 5 16 15 41 -26 8
Athugasemdir
banner
banner