Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 13. maí 2019 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Kemar Roofe ekki með í seinni leiknum
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Kemar Roofe verður ekki með Leeds United í seinni undanúrslitaleik enska umspilsins. Hann er að glíma við lítilvægleg meiðsli á kálfa.

Leeds á heimaleik við Derby County eftir að hafa sigrað fyrri leikinn 0-1. Roofe gerði sigurmarkið en hann hefur verið afar drjúgur gegn Derby á leiktíðinni.

Roofe skoraði tvennu í 1-4 sigri í deildinni á upphafi tímabils og skoraði svo aftur í 2-0 sigri á heimavelli í janúar. Hann er kominn með 15 mörk í 33 deildarleikjum.

Leeds tekur á móti Derby á miðvikudagskvöldið klukkan 18:45 og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport 2

Þá eru Adam Forshaw, Tyler Roberts, Barry Douglas og Gjanni Alioski frá vegna meiðsla og varnarjaxlinn Pontus Jansson tæpur.
Athugasemdir
banner
banner