HK/Víkingur þurfti að sætta sig við tap á heimavelli á móti Selfossi í fjörugum leik. Þær eru þá búnar að tapa tveimur leikjum í röð og eru því aðeins með 3 stig úr fyrstu þrem leikjunum.
Lestu um leikinn: HK/Víkingur 0 - 1 Selfoss
„Mér fannst við vera helst ofan á í fyrri hálfleik svo komu þær grimmar inn í seinni og við urðum kannski aðeins undir í baráttunni“ sagði Þórhallur Víkingsson þjálfari HK/Víkings um þeirra frammistöðu.
Það fór gríðarlega mikil orka í þennan leik en fannst honum hans lið klára orkuna of snemma, þar sem að þær fengu á sig mark seint í leiknum.
„Við erum í fínu formi og getum skipt inn á og eigum að geta haldið pressunni út 90 mínútur.“
Þórhallur talaði um að vilja styrkja sóknarleik liðsins eftir seinustu umferð og fékk eftir það tvo leikmenn á láni frá Breiðabliki, hann segist sáttur með það.
„Þetta er frábært, við erum búin að tapa tveimur jöfnum leikjum en við eigum eftir að snúa þessu við og fara að vinna þessa 50/50 leiki.“
Athugasemdir