Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
banner
   fim 13. maí 2021 22:38
Stefán Marteinn Ólafsson
Hannes Þór: Það skemmtilegasta sem maður upplifir í fótbolta
Hannes Þór Halldórsson markvörður Vals.
Hannes Þór Halldórsson markvörður Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum ógeðslega ánægðir með þetta að skora hérna í lokin og það er það skemmtilegasta sem maður upplifir í fótbolta að fá sigurmark í lokin," sagði Hannes Þór Halldórsson markvörður Vals eftir dramatískan sigur á HK í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  2 HK

„Við erum fegnir og við erum líka svekktir því við vorum ekki góðir og mér fannst HK spila þennan leik bara virkilega vel og áttu meira skilið út úr þessu og virkilega erfitt að eiga við þá."

Þetta virtist lengi vel ætla vera einn af þessum dögum sem ekkert myndi ganga fyrir Valsmenn en þá kom varamaðurinn Almarr Ormarsson með sigurmark í uppbótartíma.

„Mér fannst þetta vera sjálfsskapað, við vorum bara ekki nógu sharp og sérstaklega á okkar vallarhelmingi fannst mér en áttum ágætis rönn sóknarlega og eigum ekki að fá á okkur tvö mörk hérna og vorum bara ekki nógu skarpir og skilvirkir nálægt okkar vítateig og þeir voru bara að koma á okkur aftur og aftur og fengu alltof mikið út úr því."

„Heimir var ekkert ánægður með okkur, við vorum bara of soft og vorum bara að hleypa þeim of auðveldlega út úr svæðunum og vorum ekki að vinna neina seinni bolta og vorum ekki að gera þessa grunnvinnu nógu vel þannig við reyndum að skerpa á því."

Nánar er rætt við Hannes í spilaranum hér fyrir ofan
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner