Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 13. maí 2021 12:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í fyrsta skiptið í sögu Hamars - Tímamót á Grýluvelli
Stuðningsmenn Hamars
Stuðningsmenn Hamars
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í fyrsta skiptið í sögu félagsins - tímamót hjá Hamar í Hveragerði á Grýluvelli.

Í dag kl. 13:45 verður ritað nýtt blað í sögu knattspyrnufélagsins Hamars í Hveragerði þegar fyrsti leikur sumarsins gegn Uppsveitum verður í beinu streymi á netinu. Hingað til hefur það tíðkast að knattspyrnufélög á Íslandi hafi verið að streyma sínum leikjum. Nú er komið að knattspyrnudeild Hamars.

Hamar ásamt Lagnaþjónustunni og Kjörís, dyggum styrktaraðilum félagsins - kynna knattspyrnuleik frá Grýluvelli í Hveragerði á, uppstigningardag. Fyrir þá sem ekki komast hvetjum við alla til að fylgjast með leiknum í lifandi streymi með því að nálgast leikinn í opinni útsendingu án endurgjalds. Hægt að nálgast leikinn beint á Hamarsport.is með því að smella hér.

🏆 4. deild karla
⚽ Hamar - ÍBU
🏠 Grýluvöllur
📆 Fimmtudagur 13. Maí
⌚ KL 14:00

Múrþjónusta Helga Þ, Set, Raftaug og Ölverk styrkja sömuleiðis við gerð útsendingarinnar.

Í dag er fyrsti leikur sumarsins á Grýluvelli. Strákarnir í Hamri taka á móti ÍBU í fyrstu umferð 4. deildar. Leikurinn hefst kl 14:00 en útsending kl. 13:45. Liðin leika í B-riðli 4. deildar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner