Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. maí 2021 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Þú þarft svona markmann til að vinna stig fyrir þig"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Beitir Ólafsson, markvörður KR, varði vítaspyrnu í leik Fylkis og KR í gær. Arnór Borg Guðjohnsen, sóknarmaður Fylkis, tók vítið.

„Fylkir færi víti. Arnór Borg fer á punktinn en Beitir með stórkostlega markvörslu! Ver boltann og boltinn snýst í slow motion í stöngina og út," skrifaði Gylfi Tryggvason í textalýsingu frá vellinum. Leikurinn í gær endaði með 1-1 jafntefli.

„Beitir gerði vel, beið og varði frábærlega. Hann var með sterka hægri hönd, slær í boltann sem hrekkur í stöngina og í fangið á honum. Það var mjög gott. Þú þarft að hafa svona markmann til að vinna stig fyrir þig og hann gerði það í dag," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, í viðtali við Hafliða Breiðfjörð eftir leik.

Rúnar sagði eftirminnilega að Beitir væri besti markvörður deildarinnar fyrir tímabilið 2019.
Rúnar Kristins: Flott taktík hjá þeim og skemmtileg
Athugasemdir
banner
banner