Markaðurinn í Draumaliðsdeild Eyjabita lokar klukkan 17:00 í kvöld en klukkutíma síðar hefst níunda umferðin í Pepsi-deildinni.
Í kvöld eru tveir leikir á dagskrá og á morgun verða spilaðir fjórir leikir.
Í kvöld eru tveir leikir á dagskrá og á morgun verða spilaðir fjórir leikir.
Gerðu breytingar á þínu liði í tæka tíð!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Stórglæsileg verðlaun
Sjöunda árið í röð stendur Fótbolti.net fyrir Draumaliðsleik í Pepsi-deild karla. Þriðja árið í röð er harðfiskvinnslan Eyjabiti aðalstyrktaraðili deildarinnar sem rekin er af Fóbolta.net í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár.
Þjálfari stigahæsta liðsins í Draumaliðsdeildinni í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Gaman ferðum sem og harðfisk frá Eyjabita.
Eyjabiti gefur reglulega harðfisk fyrir stigahæstu umferðirnar í sumar auk þess sem að þjálfari draumaliðsins sem er á toppnum eftir 11 umferðir fær tvær fríar gistinætur á Grýtubakka við Grenivík fyrir 6-8 manns. Sjá nánar hér.
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Leikir umferðarinnar:
Í dag:
18:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
19:15 Breiðablik-Fylkir (Kópavogsvöllur)
Á morgun:
18:00 KA-Stjarnan (Akureyrarvöllur)
19:15 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
19:15 Fjölnir-Grindavík (Extra völlurinn)
19:15 Keflavík-KR (Nettóvöllurinn)
Athugasemdir