Kylian Mbappe haltraði af æfingu franska landsliðsins í Rússlandi í gær en Frakkland er að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið sem hefst á morgun
Franski hópurinn hélt opna æfingu í gær og lenti Mbappe í samstuði við varnarmanninn Adil Rami.
Hinn 19 ára gamli Mbappe var myndaður, liggjandi á jörðinni haldandi um ökkla sinn en myndina má sjá hér til hliðar.
Mbappe er hins vegar í lagi samkvæmt Twitter síðu sinni.
„Ég er í lagi, þetta var bara smá högg svo það skiptir ekki máli en takk fyrir kveðjurnar. PS. Ekki blanda vini mínum Rami í þetta, hann var ekki að reyna þetta!" sagði Mbappe.

Je vais bien, c’est juste un coup donc ce n’est pas grave mais merci pour vos messages 😜
— Kylian Mbappé (@KMbappe) June 12, 2018
PS: Et laissez mon ami @Rami13officiel c’était pas méchant 😘 pic.twitter.com/sygabBFXSd
Athugasemdir