Varnarmaðurinn efnilegi Finnur Tómas Pálmason hefur skrifað undir nýjan samning við KR. Nýr samningur hans er út tímabilið 2022.
Finnur er fæddur 2001 og hefur leikið alla sína tíð með KR, fyrir utan sumarið 2018 þegar hann var lánaður til Þróttar.
Finnur er fæddur 2001 og hefur leikið alla sína tíð með KR, fyrir utan sumarið 2018 þegar hann var lánaður til Þróttar.
Finnur hefur leikið þrjá leiki í Pepsi Max-deildinni í sumar og einn leik í Mjólkurbikarnum.
Finnur var á dögunum valinn í U21-landslið karla en þurfti að draga sig út vegna smávægilegra meiðsla.
KR, sem er í þriðja sæti í Pepsi Max-deildinni, mætir ÍA á Akranesi á laugardaginn.
Finnur Tómas skrifaði undir samning út tímabilið 2022 meira á: https://t.co/5Sli6g5qBw#allirsemeinn pic.twitter.com/7iEWyTdjgK
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) June 13, 2019
Athugasemdir