Suður-Afríka 0 - 1 Kína
0-1 Ying Li ('40 )
0-1 Ying Li ('40 )
Kína er komið með fyrstu þrjú stig sín á Heimsmeistaramótinu í Frakklandi. Kína lagði Suður-Afríku að velli í kvöld.
Kína byrjaði vel og var meira með boltann í fyrri hálfleiknum. Þær náðu hins vegar ekki að valda miklum usla fyrr en fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Þá skoraði Ying Li með fyrsta skoti Kína á rammann.
Ekki urðu mörkin fleiri í seinni hálfleiknum og lokatölur 1-0 fyrir Kína sem er í 16. sæti á heimslista FIFA. Suður-Afríka er að spila á sínu fyrsta Heimsmeistaramóti.
Kína er með þrjú stig á meðan Suður-Afríka er án stiga. Í þessum riðli eru einnig Þýskaland og Spánn. Þýskaland er með sex stig og Spánn þrjú stig. Kína og Spánn mætast í lokaumferð riðilsins.
China pick up an important 3 points against #FIFAWWC first-timers South Africa! 🇨🇳 pic.twitter.com/CfoEF8Itja
— FOX Soccer (@FOXSoccer) June 13, 2019
Athugasemdir