England vann Króatíu með einu marki gegn engu í fyrsta leik dagsins á EM. Sterling skoraði markið fyrir enska liðið.
Jesse Lingard sló í gegn á láni hjá West Ham frá Manchester United á síðustu leiktíð. Eftir þessa frammistöðu á tímabilinu bjuggust margir við að sjá hann í enska hópnum á EM.
Hann var hinsvegar ekki valinn en það vakti athygli að hann tók þátt í loka leik liðsins í undirbúningnum fyrir EM eftir að í ljós kom að hann myndi ekki taka þátt á mótinu.
Þó svo að hann sé ekki með liðinu styður hann vel við félaga sína og fylgdist með leiknum í dag á bar nokkrum. Hann deildi myndum af því á instagram síðu sinni.
Jesse Lingard missed England's #EURO2020 squad - but he's still one of their biggest supporters 🦜#ENG 📸: IG/jesselingard pic.twitter.com/S1N4V3OaxP
— Goal (@goal) June 13, 2021
Athugasemdir