Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. júlí 2018 09:00
Magnús Már Einarsson
Alderweireld eða Maguire í vörn Man Utd?
Powerade
Fer Harry Maguire til Manchester United?
Fer Harry Maguire til Manchester United?
Mynd: Getty Images
Fyllir Hazard skarð Ronaldo hjá Real Madrid?
Fyllir Hazard skarð Ronaldo hjá Real Madrid?
Mynd: Getty Images
Innan við mánuður er í að félagaskiptaglugginn loki og allt er á fullu á félagaskiptamarkaðinum. Hér er risa föstudags slúðurpakki!



Real Madrid er að undirbúa 150 milljóna punda tilboð í Eden Hazard (27) en hann á að taka stöðu Cristiano Ronaldo sem er farinn til Juventus. (Mail)

Tottenham er tilbúið að selja Toby Alderweireld (29) en hann gæti farið til Manchester United. (Yahoo Sport)

Gareth Bale (28) ætlar að funda með Julen Lopetegui, nýjum þjálfara Real Madrid, og fá framtíð sína á hreint. (Sky sports)

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur útilokað að kaupa nýjan markvörð til félagsins. (Mirror)

Chelsea er að berjast við PSG um Leonardo Bonucci (31) varnarmann AC Milan. (Corriere dello Sport)

Stoke vill fá kantmanninn Sheyi Ojo (21) frá Liverpool sem hluta af samningnum fyrir Xherdan Shaqiri (26). (Sun)

Liverpool hefur lagt fram 17,5 milljóna punda tilboð í Domagoj Vida (29) varnarmann Besiktas og króatíska landsliðsmanninn. (Fanatik)

Manchester United er að undirbúa tilboð í Harry Maguire (25) miðvörð Leicester en hann gæti kostað allt að 50 milljónir punda. (Mail)

Tottenham virðist vera að missa af miðjumanninum Adrien Rabiot (23) en hann er á leið til Barcelona. (Sport)

Arsenal og Chelsea gætu misst af Aleksandr Golovin (22) miðjumanni CSKA Moskvu þar sem hann vill fara til Juventus. (Tuttosport)

Fredi Bobic, yfirmaður íþróttamála hjá Eintracht Frankfurt, segir að félagið verði að hlusta á tilboð í kantmanninn Ante Rebic (24). Manchester United hefur sýnt Rebic áhuga eftir góða frammistöðu á HM. (Metro)

Leicester ætlar að reyna að fá Iago Falque (28) kantmann Torino til að fylla skarð Riyad Mahrez. Falque var á sínum tíma á mála hjá Tottenham. (Tutosport)

Fulham er að berjast við Wolves um Oleksandr Zincheko (16) vængbakvörð Manchester City en hann kostar í kringum 16 milljónir punda. (Telegraph)

Southampton ætlar að keppa við Lazio um Andrea Petagna (23) framherja Atalanta. (Calciomercato)

Bakary Sako (30) hefur hafnað nýjum samningi hjá Crystal Palace. (Football.London)

Wayne Rooney (32) segist hafa farið til DC United í sumar þar sem Everton lét skýrt í ljós að félagið vildi losna við hann. (ESPN)

West Ham og Manchester United hafa áhuga á Cristiano Piccini (25) hægri bakverði Sporting Lisabon. (Turkish Football)

Southampton ætlar að lána markvörðinn Fraser Forster (30) eftir að hafa keypt Angus Gunn (22) frá Manchester City. (Daily Echo)

Everton vill fá vinstri bakvörðinn Lucas Digne (24) og miðvörðinn Yerri Mina (23) frá Barcelona. (Mirror)

Badou Ndiaye, miðjumaður Stoke, vill fara aftur til Galatasaray. (Milliyet)

Nottingham Forest er að kaupa miðjumanninn Jack Colback (28) en hann var á láni hjá félaginu síðari hlutann á síðasta tímabili. (Northern Echo)
Athugasemdir
banner
banner