Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 13. júlí 2018 17:00
Magnús Már Einarsson
Barcelona vill fá Kante
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur áhuga á að fá miðjumanninn N'Golo Kante í sínar raðir frá Chelsea. Sky á Ítalíu segir frá þessu í dag.

Andre Gomes, miðjumaður Barcelona, gæti farið til Chelsea sem hluti af kaupverðinu ef af kaupunum verður.

Hinn 27 ára gamli Kante kostaði Leicester 5,6 milljónir punda þegar hann kom til félagsins frá Caen árið 2015.

Kante varð Englandsmeistari með Leicester á fyrsta tímabili sem varð til þess að Chelsea keypti hann á 32 milljónir punda sumarið 2016.

Kante hefur unnið bæði deild og bikar með Chelsea og um helgina er hann á leið í úrslit á HM með franska landsliðinu en hann hefur spilað frábærlega á mótinu í Rússlandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner