Juan Cuadrado, leikmaður Juventus, hefur ákveðið að leyfa Cristiano Ronaldo að fá treyju númer 7 hjá félaginu.
Cuadrado hefur verið í treyju 7 hjá Juventus en Ronaldo hefur spilað með sama númer á bakinu hjá Real Madrid og nánast allan sinn feril.
Eftir félagaskipti Ronaldo til Juventus í vikunni var Cuadrado ekki lengi að bjóðast til að láta Portúgalann fá sjöuna. Cuadrado verður sjálfur númer 16 í staðinn.
„Það er sælla að gefa en þiggja," skrifaði Cuadrado á Instagram þegar hann tilkynnti ákvörðun sína.
Þegar Ronaldo kom til Real Madrid árið 2009 byrjaði hann í treyju númer níu þar sem framherjinn öflugi Raul var númer sjö. Á Ítalíu fær Ronaldo hins vegar sjöuna strax.
Athugasemdir