Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 13. júlí 2018 14:14
Magnús Már Einarsson
Dagný Brynjars í viðræðum við Selfoss
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er í viðræðum við Selfoss um að leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna seinni part tímabilsins en þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins..

Dagný eignaðist fyrsta barn sitt fyrir um mánuði síðan en hún er hægt og bítandi að fara af stað á æfingum.

Undanfarin tvö ár hefur Dagný leikið með Portland Thorns í Bandaríkjunum en samningur hennar þar er á enda.

Dagný gæti nú leikið með Selfyssingum út tímabilið og hjálpað liðinu í fallbaráttunni í Pepsi-deildinni.

Dagný spilaði með Selfossi 2014 og 2015 en hún hefur einnig leikið með Val og Bayern Munchen á ferli sínum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner