Liverpool hefur verið orðað við fjöldan allan af markvörðum í sumar en eftir að Loris Karius gerði enn ein mistökin í vináttuleik gegn Tranmere hefur Klopp sagt að hann sé tilbúinn að gefa Danny Ward tækifæri í rammanum.
Danny Ward sem er landsliðsmaður Wales mun fá tækifæri til þess að sanna sig á næstunni eftir mistök Karius í vináttuleik gegn Tranmere Rovers á þriðjudaginn.
Ward hefur verið á eftir Karius og Simon Mignolet í goggunarröðinni á Anfield en eftir að hafa heillað hjá Huddersfield á síðasta ári mun markvörðurinn nú loks fá tækifæri til þess að sanna að hann geti staðið á milli stanganna fyrir félagið.
Liverpool hefur verið orðað við Alisson Becker, markvörð Roma en þeim samningsviðræðum hefur miðað hægt. Danny Ward þarf því að sýna sig og sanna á næstunni ef hann ætlar sér að eiga framtíð hjá félaginu.
Athugasemdir