Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. júlí 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Mahrez: Maguire verðskuldar að spila með stærra félagi
Harry Maguire í leik með Leicester.
Harry Maguire í leik með Leicester.
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez segir að Harry Maguire verðskuldi að fara frá Leicester og ganga til liðs við stærra félag. Maguire er orðaður við Manchester United í slúðurpakka dagsins.

Mahrez fór sjálfur frá Leicester til Manchester City í vikunni á 60 milljónir punda og hann telur að Maguire eigi að fá að fara svipaða leið.

„Ég hef alltaf verið á því að 'H' (Harry Maguire) er mjög góður leikmaður. Hann hefur sýnt það frá fyrsta degi síðan hann kom til Leicester og á síðasta tímabili," sagði Mahrez.

„Það kemur mér ekki á óvart að sjá hvernig hann hefur staðið sig á HM."

„Auðvitað verðskuldar hann að spila með stærra félagi en Leicester er gott félag líka svo þetta er hans að ákveða."

Athugasemdir
banner
banner