Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 13. júlí 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Yvan Erichot fékk heilahristing
Yvan Erichot.
Yvan Erichot.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Yvan Erichot, varnarmaður ÍBV, fékk slæmt höfuðhögg snemma leiks gegn Sarpsborg í gær. Tíu mínútna hlé var gert á leiknum á meðan hugað var að meiðslum Yvan.

Yvan var síðan borinn af velli en Sigurður Arnar Magnússon tók stöðu hans síðan í vörninni.

„Hann fékk heilahristing og er með verki í andlitinu," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, við Fótbolta.net í dag aðspurður út í meiðslin hjá Yvan.

„Hann kom heim til sín í gærkvöldi en fer núna í þetta höfuðáverka ferli."

Ljóst er að Yvan missir af síðari leiknum gegn Sarpsborg í Noregi í næstu viku en ekki er ljóst hvenær hann verður klár í slaginn á ný.

ÍBV tapaði leiknum í gær 4-0 og á brattann er að sækja fyrir síðari leikinn í Noregi.
Athugasemdir
banner
banner