13.07.20 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Cellino meiddist í áflogum við ræningja

Massimo Cellino

Mynd: Getty Images

Massimo Cellino

Mynd: Getty Images
Massimo Cellnio, fyrrum eigandi Leeds og núverandi eigandi Brescia, meiddist á nefi í áflogum við tvo menn nálægt heimili sínu í gær.
Tveir menn réðust að Cellino og reyndu að ræna úri sem hann var með á hendinni.
Cellino varðist fimlega og ræningjarnir enduðu á að flýja af vettvangi án þess að ná úrinu.
Cellino meiddist hins vegar á nefi þar sem höfuð hans lenti á bílhurðinni á bílnum hans.

Brescia, sem Birkir Bjarnason spilar með, tapaði 3-0 gegn Roma um helgina og er níu stigum frá öruggu sæti í Serie A þegar sex umferðir eru eftir.