Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. ágúst 2019 13:30
Elvar Geir Magnússon
AC Milan reynir við Bruno Fernandes
Bruno Fernandes.
Bruno Fernandes.
Mynd: Getty Images
Portúgalskir fjölmiðlar segja að AC Milan hafi rætt við Sporting Lissabon um möguleg kaup á Bruno Fernandes.

Ekki er talið mjög líklegt að ítalska félagið nái samkomulagi en Sporting er með 70 milljóna evra verðmiða á honum.

Manchester United og Tottenham gerðu tilraunir til að kaupa leikmanninn í sumar.

A Bola segir að AC Milan hafi boðið 30 milljónir evra auk Andre Silva og Samu Castillejo.

Bruno Fernandes verður 25 ára í næsta mánuði en hann vann með Marco Giampaolo, stjóra Milan, hjá Sampdoria.
Athugasemdir
banner
banner
banner