Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 13. ágúst 2019 12:35
Elvar Geir Magnússon
Atletico Madrid að kaupa Rodrigo
Rodrigo er á leið til Atletico.
Rodrigo er á leið til Atletico.
Mynd: Getty Images
Goal greinir frá því að Atletico Madrid sé að ganga frá kaupum á Rodrigo Moreno, sóknarmanni Valencia, á 60 milljónum punda.

Staðfesting er væntanleg í vikunni en Atletico ætlar að styrkja sig sóknarlega.

Atletico hefur verið orðað við James Rodriguez en hefur verið að leggja allt kapp á að klára Rodrigo sem á sautján landsleiki fyrir Spán.

Rodrigo, sem er 28 ára, náði ekki að sýna sínar bestu hliðar á síðasta tímabili en hann skoraði 17 mörk í öllum keppnum, 8 mörk í 33 leikjum í La Liga.
Athugasemdir
banner
banner