Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. ágúst 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Jökull hélt hreinu í fyrsta leik - Mætir Man Utd á föstudag
Mynd: Reading
Jökull Andrésson hélt markinu hreinu í fyrsta leik ensku varaliðsdeildarinnar í gær þegar liðið mætti Newcastle.

Leiknum lauk með öruggum 6-0 sigri Reading en lið skoraði þrjú mörk í hvorum hálfleik.

Á dögunum var það gefið út að Jökull verði þriðji þriðji markvörður Reading á tímabilinu, á eftir Sam Walker og Joao Virgina sem er á láni frá Everton.

Jökull lék með yngri flokkum Aftureldingar áður en hann fór í yngri flokka Reading árið 2014 þegar bróðir hans Axel Óskar gekk til liðs við félagið.

Næsti leikur Reading í ensku varaliðsdeildinni er gegn Manchester United á föstudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner