Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 13. ágúst 2019 15:21
Magnús Már Einarsson
Kante meiddist aftur gegn Man Utd - Tæpur fyrir Liverpool leikinn
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, hefur greint frá því að N'Golo Kante hafi orðið fyrir meiðslum í 4-0 tapinu gegn Manchester United um helgina.

Kante var að basla með meiðsli undir lok síðasta tímabils og hann var ekkert með Chelsea á undirbúningstímabilinu. Kante byrjaði á bekknum gegn Manchester United en hann kom inn á sem varamaður á 73. mínútu.

Þar meiddist franski miðjumaðurinn aftur og óvíst er með þátttöku hans í leiknum gegn Liverpool í Ofurbikarnum annað kvöld.

„Kante var á bekknum því hann hafði verið meiddur. Ég veit hversu mikilvægur hann er," sagði Lampard í dag.

„Hann varð fyrir smávægilegum meiðslum í leiknum og við erum að skoða þau."
Athugasemdir
banner
banner