Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. ágúst 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Lampard vill engar afsakanir eftir Ofurbikarinn
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, vill ekki sjá leikmenn sína koma með neinar afsakanir eftir leikinn gegn Liverpool um Ofurbikar Evrópu annað kvöld.

Lampard og lærisveinar hans steinlágu 4-0 gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni um helgina en nú er framundan stór leikur gegn Liverpool.

„Að mæta liði með gæði á við Liverpool í úrslitaleik gerir úrslitaleik eins spennandi og hann getur orðið," sagði Lampard.

„Allir leikmenn þurfa að vera klárir á mikilvægi leiksins fyrir félagið og við þurfum að gefa allt okkar því þetta verður erfitt."

„Þetta verður erfitt en við getum ekki gengið af velli og hugsað 'Oh, við hefðum getað gert þetta' eða 'Við klúðruðum þessu tækifæri' eða 'Við vorum ekki alveg tilbúnir' eða búið til afsakanir fyrir okkur sjálfa."

Athugasemdir
banner
banner