Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 13. ágúst 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Líklegt að Sturridge semji við félag utan Englands
Mynd: Getty Images
Líklegt þykir að Daniel Sturridge muni semja við félag utan Englands á næstunni.

Hinn 29 ára gamli Sturridge er félagslaus í augnablikinu en samningur hans hjá Liverpool rann út í sumar.

Þrettán félög hafa sýnt honum áhuga og þar á meðal eru Fenerbahce, Besiktas og Trabzonspor í Tyrklandi.

Marseille í Frakklandi, Eintracht Frankfurt í Þýskalandi, Real Betis á Spáni og Atalanta og DC United í Bandaríkjunum eru einnig með Sturridge á óskalistanum.

Aston Villa og fleiri ensk félög sýndu Sturridge áhuga fyrr í sumar en nú bendir flest til þess að hann fari í félag utan Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner