Markaðurinn opinn í báðum deildum
Það fer að styttast í annan endann á fótboltasumrinu á Íslandi og það þýðir líka að það fer að styttast í annan endann á Draumaliðsdeildum Fótbolta.net í samstarfi við Eyjabita og Toyota.
Það eru sex umferðir eftir í Pepsi Max-deild karla og fimm eftir í Pepsi Max-deild kvenna.
Það er til mikils vinna í Draumaliðsleikjunum.
Í Draumaliðsdeild Eyjabita fær þjálfari stigahæsta liðsins ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Vita ferðum sem og harðfisk frá Eyjabita. Eyjabiti gefur reglulega harðfisk fyrir stigahæstu umferðirnar.
Í Draumaliðsdeild Toyota eru einnig stórglæsileg verðlaun. Toyota gefur ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Vita ferðum.
Það er um að gera að mæta af krafti í þessar síðustu umferðir og reyna að ná sér í verðlaun.
Markaðurinn í báðum Draumaliðsleikjum er núna opinn. Hann verður opinn í Draumaliðsdeild Eyjabita þangað til klukkan 15:00 á sunnudag og í Draumaliðsdeild Toyota verður hann opinn þangað til á fimmtudag klukkan 17:00
Smelltu hér til að fara á síðu Draumaliðsdeildar Eyjabita
Smelltu hér til að fara á síðu Draumaliðsdeildar Toyota.
Athugasemdir