Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 13. ágúst 2019 20:00
Oddur Stefánsson
Mane andlega þreyttur - Klár fyrir Chelsea leikinn
Mynd: Getty Images
Sadio Mane viðurkennir að hann sé andlega þreyttur eftir erfitt tímabil með Liverpool og erfiða Afríkukeppni með Senegal.

Senegalinn fékk aðeins tvær vikur í frí eftir Afríkukeppnina og náði ekki leiknum um Samfélagsskjöldinn og byrjaði á bekknum gegn Norwich.

„Auðvitað er ég tilbúinn, þreytan er bara hér," (og benti á hausinn á sér). „Ég held ég hafi ekki fengið frí í sjö ár þannig ég er vanur þessu."Sagði Mane á blaðamannfundi.

Liverpool mætir Chelsea á morgun þegar liðin keppa um Ofurbikarinn þar sem liðið sem vann Meistaradeildina og Evrópudeildina mætast.

Lampard og hans menn í Chelsea byrjuðu ekkert sérstaklega vel þegar þeir steinláu fyrir Manchester United 4 - 0 síðasta sunnudag.


Athugasemdir
banner
banner