Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. ágúst 2019 20:30
Oddur Stefánsson
Merson um gagnrýnina á Maguire: Ég var úti á túni
Mynd: Getty Images
Paul Merson sem vinnur sem spekingur fyrir Sky sports hefur dregið til baka harða gagnrýni á Harry Maguire eftir stjörnuleik gegn Chelsea.

Merson gagnrýndi Maguire harkalega og verðmiðann sem United greiddi fyrir enska landsliðsmanninn. Hann kallaði viðskiptin „fáránleg og ekki góð kaup."

Þegar Merson var spurður út í ummæli hans á Maguire saði hann að hann hafið verið algjörlega úti á túni og dónarlegur. Hann sagði einnig að hann hafi haft samband við Maguire til að biðjast afsökunar.

„Ég held að ég hafi misst mig aðeins og það sem ég vildi koma á framfæri komst ekki til skila."

Ég var algjörlega úti á túni og ég er fyrstur til að viðurkenna það."

Paul Merson er Arsenal goðsögn og hefur látið margt flakka á hans ferli hjá Sky sports.
Athugasemdir
banner
banner