Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. ágúst 2019 16:15
Magnús Már Einarsson
Ribery eða Balotelli til Fiorentina?
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Fiorentina er í viðræðum við Franck Ribery en Sky segir frá þessu í dag.

Ribery er án félags en samningur hans hjá Bayern Munchen rann út í sumar.

Hinn 36 ára gamli Ribery var í tólf ár hjá Bayern en óvíst er hvað tekur við hjá honum.

Fiorentina vill fá stórt nafn í leikmannahóp sinn og ef Ribery kemur ekki þá er Mario Balotelli næsta skotmark.

Balotelli er líka félagslaus en hann hefur verið undanfarna daga í viðræðum við Flamengo í Brasilíu. Þær viðræður hafa þó gengið treglega og Balotelli gæti endað hjá öðru félagi.
Athugasemdir
banner
banner
banner