Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 13. ágúst 2022 16:10
Aksentije Milisic
Lengjudeildin: Sjöundi sigur Fylkis í röð kom gegn Vestra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri 0 - 1 Fylkir
0-1 Mathias Laursen ('55)

Eini leikur dagsins í Lengjudeild karla var viðureign Vestra og Fylkis á Ísafirði.

Lestu nánar um leikinn hérna.


Leiknum lauk með 0-1 sigri Fylkis en liðið er í öðru sæti deildarinnar, níu stigum fyrir ofan Fjölni sem er í því þriðja.

Mathias Laursen gerði eina markið í dag á 55. mínútu eftir sendingu frá Birki Eyþórssyni.

„Fylkir komnir yfir! Hornið fer yfir á hinn kantinn þar sem Birkir er fyrstur í boltann, á hárnákvæma fyrirgjöf sem Mathias skallar óverjandi í bláhornið í fjær," skrifaði Jón Ólafur Eiríksson í beinni textalýsingunni.

Fátt ætlar því að koma í veg fyrir að HK og Fylkir fari upp í efstu deild að nýju en Vestramenn sigla lignan sjó um miðja deild eða í 7. sætinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner