mið 13. september 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
Giroud: Var nálægt því að fara frá Arsenal
Mynd: Getty Images
Olivier Giroud segist hafa verið nálægt því að fara frá Arsenal í sumar. Giroud hefur skorað 99 mörk fyrir Arsenal síðan hann kom til félagsins frá Montepllier árið 2012.

Eftir komu Alex Lacazette til Arsenal í sumar var Giroud orðaður við önnur félög. Hann ákvað hins vegar að halda tryggð við Arsenal.

„Það er satt að ég var nálægt því að fara frá félaginu," sagði Giroud á fréttamannafundi í dag.

„Ég sagði að ég vildi spila en eftir að hafa rætt við fjölskylduna mína og nána vini þá ákvað ég að vera áfram hjá Arsenal."

„Ég taldi að sögunni væri ekki lokið hjá Arsenal. Félagið hefur gefið mér mikið og ég vil gefa eitthvað til baka, bæta mig og vinna titla. Ég sagði við stjórann að sögunni okkar sé ekki lokið."

Athugasemdir
banner
banner