Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 13. september 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Sjö hvíldir hjá Arsenal á morgun - Wilshere spilar
Wilshere gæti spilað sinn fyrsta leik með Arsenal langan tíma.
Wilshere gæti spilað sinn fyrsta leik með Arsenal langan tíma.
Mynd: Getty Images
Petr Cech, Laurent Koscielny, Alexandre Lacazette, Danny Welbeck, Granit Xhaka, Mesut Ozil og Aaron Ramsey verða allir hvíldir þegar Arsenal mætir Köln í Evrópueildinni á morgun. Leikmennirnir sjö fengu allir frí á æfingu hjá Arnseal í dag.

Jack Wilshere æfði hins vegar og líklegt þykir að hann fái tækifæri í byrjunarliðinu.

Wilshere var í láni hjá Bournemouth á síðasta tímabil en nú er útlit fyrir að hann spili sinn fyrsta leik með Arsenal í rúmt ár.

Alexis Sanchez verður væntanlega einnig í byrjunarliðinu og þeir Per Mertesacker, Theo Walcott og David Ospina gætu allir spilað.

Þá er reiknað með því að yngri leikmenn eins og Reiss Nelson og Joe Willock fái tækifæri til að láta ljós sitt skína.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner