Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. september 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Guardiola vill enda ferilinn með unglingalið Barcelona
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, vonast til að enda ferilinn sem þjálfari hjá B liði Barcelona.

B lið Barcelona spilar í spænsku C-deildinni en þar fá leikmenn úr unglingaliðinu tækifæri til að spreyta sig.

Guardiola hóf þjálfaraferil sinn sem þjálfari hjá B-liði Barcelona árið 2007 og hann vill enda ferilinn þar líka.

„Ég ætla að enda þar sem ég byrjaði; lokaskref mín verða með unglingalið, vonandi hjá Barcelona," sagði Guardiola.

Hinn 47 ára gamli Guardiola stýrði B-liði Barcelona í eitt tímabil en síðan þá hefur hann unnið fullt af titlum með Barcelona, Bayern Munchen og Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner