Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. september 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Carragher hrífst af Sterling: Orðinn betri en Neymar
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, fer fögrum orðum um Raheem Sterling í pistli í The Telegrpah í dag.

Sterling hefur verið öflugur með Manchester City og enska landsliðinu í haust og Carragher telur að hann sé einn besti leikmaður í heimi í dag.

„Ég tel að Sterling sé betri en Neymar í dag. Metnaður hans og Kylian Mbappe ætti að liggja í að fylla skarð Messi og Ronaldo þegar þeir hætta," sagði Carragher.

Næsta mark sem Sterling skorar verður 40. mark hans síðan í byrjun síðasta tímabils. Manchester City keypti hann frá Liverpool sumarið 2015.

„Ég taldi að Liverpool hefði náð góðum samningum þegar liðið seldi hann á tæpar 50 milljónir punda. Það var rangt hjá mér. Þegar ferli hans lýkur þá verður ljóst að City keypti hann á góðu verði," sagði Carragher.
Athugasemdir
banner
banner
banner